


Vetrarbraut er milli 1. og 2. hæðar hússins. Gengið er inn í salinn niður fáeinar tröppur frá Silfurtungli á 2.hæð eða upp fáeinar tröppur úr Himinhvolfi á jarðhæð. Þegar inn í salinn er komið eru tveir upphækkaðir pallar hvor sínum megin við innganginn. Tveir neyðarútgangar liggja til Njálsgötu, annar þeirra þjónar jafnframt sem vörumóttaka fyrir salinn og hinn sem inngangur fyrir listamenn til græna herbergis.
Viðburði í Vetrarbrautinni má setja upp á fjölbreyttan máta.
Hringborð eða langborð fyrir 10-12 gesti:
Hringborð á gólfi fyrir allt að 300 manns, rými á pöllum allt að 50 gesti.
Langborð á gólfi fyrir allt að 320 manns, rými á pöllum allt að 50 manns.
Mesti fjöldi í sitjandi borðhaldi: 512 gestir (svið fjalægt og minni stólar).
Stólar fyrir leiksýningar, tónleika og fyrirlestra:
Stólar á gólfi fyrir 312 gesti
Stólar á pöllum fyir 100 gesti
Auður gólfflötur (m.v. 40 m2 svið): 400+ m2
Auður gólfflötur palla alls: 50 m2
Lofthæð yfir sviði: 5,0 mtr., mesta lofthæð á gólfi: 6,4 mtr.
Tæknibúnaður - almennt:
Tæknibúnaður í Vetrarbraut er framúrskarandi góður, svið, ljós, hljóð og mynd. Öll tækniþjónusta í Austurbæ er á vegum Luxor tækjaleigu. Stærri og flóknari viðburðir krefjast yfirleitt undirbúnings (t.d. hljóðprufa) og yfirsetu tæknimanna Luxor sem greiðist sérstaklega.
Svið
Stærð: 40 fm ( 5 x 8 mtr)
Hæð: 90 cm
Búnaður: Míkrafónn og Svartar drapperingar á hlið, LED-stjörnutjald í bak.
Ljós
Svið: Fram- og baklýsing á svið.
Yfir sal: Fjögur Robe ljós og borðalýsing
Loft: Innfelld LED lýsing í skel í loftinu öllu
Reykur: Reykvél, hátækni brunavarnakerfi
Ljósaborð: Avolites Quartz
Hjóð
Háklassa hljóðkerfi og sviðsmonitor.
Hljóðmixer: DiGiCo S21 48 rásir
Mynd
12,000 lumen HD myndvarpi
2 x 3,5 mtr. tjald bakvið svið







Snorrabraut 37 Reykjavík | S:518 4000 hallo@austurbaer101.is