top of page

Austurbær

Austurbær er viðburðahús við Snorrabraut, - í miðbæ Reykjavíkur.  Áratugum saman var það stærsta samkomuhús borgarinnar sem hýsti ótal viðburði frá miðnæturrevíum Leikfélags Reykjavíkur til rokktónleika Kinks.  Í Austurbæ eru þrír samtengdir salir sem henta fyrir fjölbreytta viðburði með allt að 1.000 gestum. Húsið var opnað í núverandi mynd í mars 2018 eftir að hafa verið endurnýjað í hólf og gólf.  Síðan þá hafa á annað hundrað viðburðir farið fram í húsinu, fundir, tónleikar, leikrit, dansleikir, árshátíðir o.fl.  Ríkulegur tæknibúnaður er til staðar í húsinu og innréttingar með þeim hætti að auðvelt er að aðlaga það ólíkustu þörfum.  Gott aðgengi er fyrir fatlaða að og í húsinu.  Ef viðburður er í vændum hjá þér, hafðu samband við okkur. 

 Snorrabraut 37  Reykjavík  |  S:518 4000 hallo@austurbaer101.is

bottom of page